Rígurinn fjallar um byggðamál á Íslandi og þann undirliggjandi byggðaríg sem þar er að finna. Ríg á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggða, ríg innan landshluta og á milli landshluta. Fjallað er um sögulegt samhengi íslensks byggðarígs, rýnt í stjórnmál, menningu, jafnréttismál, verkalýðsbaráttu, menntun, samgöngumál, ólík viðhorf eftir búsetu og tekjum svo eitthvað sé nefnt. Markmið þáttanna er að vekja áhuga á byggðamálum og veita hlustendum tækifæri til að velta þeim fyrir sér út frá sjónarhornum ólíkra byggða, allt frá vaxtarsvæðum til brothættra byggða.
Í þessum þætti eru skoðaðar ýmsar rannsóknir og kannanir bæði formlegar óformlegar sem lýsa mun á viðhorfum íbúa landsbyggðanna og höfuðborgarinnar. Þá er horft til byggðarígs í Bandaríkjunum. Sérstaklega er fjallað samgöngumál, enda þau líklega umdeildustu byggðamálin. Þá er fjallað um vaxtarverki þegar íbúum fjölgar hratt, en eins á svæði þar sem fólksfækkun hefur verið viðvarandi. Sérstaklega er fjallað um stöðu Vestfjarða. Þá horfum við einnig til framtíðar og líklegrar þróunar í byggðamálum.
Lestur:
Hilda Jana Gísladóttir
Ingvar Már Gíslason
Tónlist:
Take me home, country roads
Vegir liggja til allra átta
Þorpið
Viðmælendur:
Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor
Þóroddur Bjarnason, prófessor
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE
Dagur B. Eggertsson, þáverandi borgarstjóri
17 Jul 2024
2.þáttur: Rígurinn
Í þessum þætti er fjallað um byggðaríg í íslenskum stjórnmálum, ólíkt atkvæðavægi, kjördæmapot, stjórnmálaflokkana sjálfa. Þá er rýnt í ólík viðhorf og stöðu íbúa ólíkra byggða s.s. stjórnmálaskoðanir, menntun og kjör. Einnig er fjallað um almennan kjaftagang, ímynd byggða og jafnréttismál.
Lestur:
Hilda Jana Gísladóttir
Ingvar Már Gíslason
Viðmælendur:
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyri
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor
Katrín Ríkharðsdóttir, þáverandi jafnréttisstýra
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
Þorlákur Axel Jónsson, aðjúnkt
Hljóðbrot:
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar
Tónlist:
Ísland er land þitt
Eniga meiga
Áfram stelpur
17 Jul 2024
Rígurinn: 1.þáttur
Fjallað er um byggðamál í sögulegu samhengi og rýnt í það hversu djúpstæðar rætur hins íslenska byggðarígs eru. Fjallað er um sjálfstæðisbaráttu Íslands og stjórnmálasögu. Sérstaklega er rýnt í íslenska tónlist og kvikmyndir í því skyni að skoða tilfinningatengsl og ímynd byggða.
Lestur:
Hilda Jana Gísladóttir
Ingvar Már Gíslason
Viðmælendur:
Valgeir Þorvaldsson, stofnandi Vesturfarasetursins á Hofsósi
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor
Dagur B. Eggertsson, þáverandi borgarstjóri
Þóroddur Bjarnason, prófessor
Hljóðbrot:
Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra
Ágúst Guðmundsson, leikstjóri
Óðal feðranna
Nýtt líf
Dalalíf
Verbúðin
Tónlist:
Ísland er land þitt
Tvær úr Tungunum
Á sjó
Þúsund þorskar á færibandi
Við Reykjavíkurtjörn
Fröken Reykjavík
Vorkvöld í Reykjavík
Ó borg, mín borg
Reykjavík er ömurleg
Reykjavík
Ó Reykjavík ó Reykjavík
Ég fer í fríið
Sveitaball
Vor í Vaglaskógi
Einu sinni á ágústkvöldi
Stingum af
Lífið er yndislegt
Contact Rígurinn
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Rígurinn?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine