Spegilmyndin er mannlífsþáttur um kvenheilsu, heilbrigðan lífsstíl, mataræði, hreyfingu, tískustrauma, líkamsvirðingu og fegrunar- og lýtaaðgerðir. Höfundur og þáttastjórnandi er Marín Manda Magnúsdóttir, menningarmiðlari og nútímafræðingur en framleiðandi sjónvarpsþáttanna er Orca Films.
Hlaðvarp Spegilmyndarinnar lítur dagsins ljós samhliða sjónvarpsseríu 2 af Spegilmyndinni sem sýnd verður á Stöð 2 og Stöð 2+ í mars og apríl 2023. Í hlaðvarpinu ræðir Marín Manda við viðmælendur sína um það helsta í heilsu og fegrunariðnaðnum á Íslandi líkt og hún gerir í sjónvarpsþáttunum. Hún skyggnist inn í ýmis áhugaverð málefni sem eru áberandi í umræðunni en viðmælendur eru af ýmsum toga. Ber þar að nefna húðlækna, næringarfræðinga, sálfræðinga, heilsuráðgjafa, snyrtifræðinga, þjálfara, kvensjúkdómalækna, lýtalækna og aðra sérfræðingar sem tengjast viðfangsefninu hverju sinni.
65. Helga Sigrún Hermannsdóttir eigandi Dóttir skin- Vísindin á bak við sólarvarnir eru rosalega flókin
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Helga Sigrún Hermannsdóttir eigandi Dóttir skin. Helga Sigrún lærði efnaverkefræði í Danmörku og hefur ávallt haft mikinn áhuga á innihaldsefnum í snyrtivörum. Eftir að hafa sjálf upplifað slæman sólbrúna greindist hún með frumubreytingar og það hræddi hana. Í kjölfarið fór hún sjálf að nota sólarvarnir og hellti sér í rannsóknarvinnu á slíkum vörum. Hún segir mikilvægt að vera með gagnsæi, hreinskilni og fræðslu þegar kemur að húð- og snyrtivörum. Helga Sigrún segist ávallt hafa verið með stóra drauma en fyrir um þremur árum rættist einn þeirra þegar að hún stofnaði Dóttir skin með Crossfit íþróttakonunum Annie Mist og Katrínu Tönja. Með þeim þróaði hún sólarvörn sem ertir ekki húðina og hentar öllum - Í dag er varan komin í fjölmargar verslanir Lyfju en ferlið var alls ekki áfallalaust. Magnað spjall við þessa frábæru ungu konu.
#Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró.
27 Apr 2025
64. Linda Sæberg - Það bjargaði sennilega lífi mínu að hafa farið heim frá Balí
Hin ævintýragjarna, tilfinninganæma og fallega Linda Sæberg hefur upplifað ýmislegt á sinni lífsleið. Aðeins 36 ára greindist hún með þríneikvætt brjóstakrabbamein og þar með var fótunum kippt undan henni. Hún var erlendis í stelpuferð þegar hún fann æxlið og vildi einna helst sleppa því að ræða það frekar, því þá væri það, ef til vill ekki raunverulegt. Eftir greiningu breyttist lífið á augabragði og við tók erfið lyfjameðferð. Í dag er Linda Sæberg laus við krabbameinið og segist þakklát fyrir vegferðina.
Hún hefur verið í mikilli andlegri vegferð og ákvað fyrir örfáum mánuðum að segja starfi sínu lausu og opna nuddstofuna og verslunina Unalome, með sínum heittelskaða. Hún er menntuð sem félagsráðgjafi og fljótlega klárar hún þerapistanám sem mun nýtast henni í að aðstoða fólk við að hlúa að sárum sínum í kærleik. Áhugavert spjall við dásamlega konu í þessum hlaðvarpsþætti.
2 Mar 2025
63. Jón Halldórsson hjá KVAN - Slökkvum á símanum og förum út!
Jón Halldórsson, einn af eigendum KVAN var gestur í hlaðvarpinu að þessu sinni. Hann er menntaður íþróttakennari, lögreglumaður og vottaður ACC markþjálfi og hefur í fjölda ára starfað við að þjálfa einstaklinga, stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja. Jón er einnig starfandi formaður Handknattleiksdeildar Vals. Í þessum þætti áttum við einlægt spjall um starfið sem þjálfari og hvernig við sem einstaklingar blómstrum þegar við fáum að starfa við þau verkefni sem næra okkur. Jón hefur ásamt eiginkonu sinni og meðeigendum, ástríðu fyrir því að búa til umhverfi þar sem að börn blómstra, en hann segir einmitt það hafa verið grunninn að fyrirtækinu KVAN. KVAN er mennta- og þjálfunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í námskeiðahaldi og sérsniðnum þjálfunarlausnum og fyrirlestrum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
*Þátturinn er í boði: Max Factor, Netgíró og Klaka
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
8 ratings
Podcast Authority Score: 41 / 100
A composite of feed quality, social presence, YouTube performance and engagement. Read the methodology.
Quality
50
Social presence
0
YouTube
0
Engagement
81
Contact Spegilmyndin
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Spegilmyndin?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine