Vikulegur þáttur um stjörnuspeki þar sem við komum til með að endurvekja áhuga fólks á sjálfsþekkingu. Hver ertu? Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar, og hvernig getur þú unnið með þá.
Nýr þáttur kemur út vikulega á öllum helstu streymisveitum.
110 Gestur: Fjóla frænka. Erfiðir transitar – áföll eða tækifæri?
Þáttarlýsing
Getum við lært að skilja okkur sjálf betur með því að skoða bæði fortíðina og stjörnukortið okkar?
Í þessum þætti fá Ásgeir og Hera til sín góðan gest, Fjólu frænku, sem er uppeldisráðgjafi, kennari og höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra.
Fjóla segir frá því hvernig hún lifði árum saman með áfallastreitu án þess að átta sig á því og hvernig hún tókst á við fortíðina. Við ræðum hvernig stjörnuspekin hefur hjálpað henni að skilja sjálfa sig og aðra, sérstaklega börn og ólíkar þarfir þeirra.
Einnig skoðum við áhrif Úranusar, afturvirkar plánetur, ólíkar orkur í daglegu lífi og hvernig stjörnukortið getur gefið okkur nýja sýn á þau tímabil sem við göngum í gegnum.
5 punktar úr þættinum
Er hægt að lifa með áfallastreitu án þess að vita af því? Fjóla segir frá eigin reynslu, hvernig fortíðin mótaði líf hennar og hvað gerðist þegar hún fór loksins að horfast í augu við það sem hún hafði upplifað.
Er barnið þitt erfitt – eða einfaldlega öðruvísi? Hvernig getur stjörnuspekin hjálpað foreldrum að sjá styrkleika barna sinna í stað þess að reyna að breyta þeim?
Úranus – þegar lífið tekur óvænta stefnu. Hvers vegna upplifa sumir breytingar og óstöðugleika mun sterkar en aðrir? Og getur það sem virðist vera erfið orka reynst okkur nauðsynlegt?
Af hverju eru svona margar plánetur afturvirkar? Við skoðum hvað afturvirkni þýðir í stjörnuspeki og hvers vegna slík tímabil eru oft tengd endurskoðun, uppgjöri og því að horfa til baka áður en haldið er áfram.
Getur stjörnukortið hjálpað okkur í gegnum erfið tímabil? Fjóla segir frá því hvernig stjörnuspekin gaf henni nýjan skilning og sameiginlegt tungumál til að ræða það sem hún var að ganga í gegnum.
19 Oct 2026
109: Tvíburinn og Bogmaðurinn / Samskipti og ólíkar þarfir
Hvað er það sem aðgreinir Tvíburann og Bogmanninn þótt þeir virðist eiga svo margt sameiginlegt? Og hvernig getur stjörnuspekin hjálpað okkur að skilja ólíkar þarfir fólks í samskiptum og samböndum?
Í þessum þætti förum við vítt og breitt um stjörnuspekina. Við skoðum andstæður merkjanna, mikilvægi þess að sjá aðra á þeirra eigin forsendum og hvernig ólíkar orkur geta bæði skapað togstreitu og styrkt sambönd. Einnig skoðum við stjörnukort knattspyrnumannsins Michael Olise og Xi Jinping, forseta Kína.
Punktar úr þættinum
Tvíburinn og Bogmaðurinn – hver er munurinn? Bæði merkin eru forvitin, jákvæð og sífellt á ferðinni. En á meðan Tvíburinn safnar hugmyndum, miðlar upplýsingum og spyr spurninga leitar Bogmaðurinn að dýpri merkingu, þekkingu og sannfæringu. Tvíburinn efast – Bogmaðurinn trúir.
Samskipti – að læra að sjá aðra eins og þeir eru. Við eigum það til að sýna öðrum ást og umhyggju á þann hátt sem við sjálf viljum fá hana. En hvað ef hinn aðilinn hefur allt aðrar þarfir? Stjörnuspekin getur hjálpað okkur að skilja þennan mun og bæta samskipti okkar.
Ljónið vill ekki bara hrós – það vill láta sjá sig. Hera og Ásgeir ræða hvernig ólíkar orkur þeirra birtast í sambandinu. Fyrir Ljónið getur viðurkenning og það að tekið sé eftir framlagi þess skipt miklu máli, á meðan Steingeitin lítur kannski á sömu hluti sem sjálfsagða.
Michael Olise – hæfileikar, sjálfstæði og sterkar tilfinningar. Stjörnukort knattspyrnumannsins Michael Olise er skoðað út frá Bogmanninum, tungli í Sporðdreka og spennum frá Satúrnusi, Plútó og Úranusi. Hvernig geta miklir hæfileikar, jákvæðni og tilfinningaleg hlédrægni farið saman?
Xi Jinping – Tvíburinn sem stjórnar Kína. Stjörnukort forseta Kína er tekið til skoðunar, sérstaklega Merkúr í Krabba og tengsl hans við Satúrnus og Úranus. Rætt er um hvernig þessar afstöður eru túlkaðar í tengslum við agaða hugsun, útsjónarsemi og nýsköpun.
22 Sept 2026
108: Loftmerkin – Tvíburinn og Vogin
Loftmerkin – Tvíburinn og Vogin
Loftið – heimur hugmynda og tengslaTvíburi, Vog og Vatnsberi tilheyra loftinu. Loftið tengir saman, flytur upplýsingar og hugmyndir á milli fólks og lifir sterkt í samskiptum, tengslum og hugsun. En hvað gerist þegar loftið verður of mikið og við festumst uppi í höfðinu?
Tvíburinn – hugmyndir, húmor og endalaust upplýsingaflæðiTvíburinn er forvitinn, fljótur, félagslyndur og þarf oft að hafa marga bolta á lofti. Hann miðlar, tengir fólk saman og sáir hugmyndum – en í niðurspíral getur hann farið í ofhugsun, slúður, leiða og lofað meiru en hann nær að framkvæma.
Af hverju þarf Tvíburinn alltaf að „skreppa“?Það þarf eitthvað að vera að gerast. Nýtt fólk, nýjar upplýsingar, ný verkefni og nýjar hugmyndir. Tvíburinn getur verið eins og kónguló í miðju tengslaneti sem veit hver þekkir hvern, hvert á að fara og við hvern þarf að tala.
Vogin – miklu ákveðnari en margir haldaVogin vill frið, fegurð, réttlæti og jafnvægi og er góð í að sjá fleiri en eina hlið málsins. Hún getur virst óákveðin vegna þess að hún vill fyrst vega og meta. Þegar hún hefur hins vegar komist að niðurstöðu getur hún verið mjög ákveðin – „stálhnefi í silkihanska“.
Þegar friðarsókn Vogarinnar verður að meðvirkniVogin vill forðast átök og getur þess vegna látið of mikið yfir sig ganga, þagað og reynt að halda öllum góðum. Þá safnast orkan upp þar til hún springur eða fer í hina vogarskálina. Verkefnið er ekki að forðast átök heldur að læra málefnalega ákveðni og standa með sjálfri sér.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
3 ratings
Spotify
4.9 / 5
83 ratings
Podcast Authority Score: 25 / 100
A composite of feed quality, social presence, YouTube performance and engagement. Read the methodology.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine