Taktu stökkið er viðtalshlaðvarp þar sem Bensi ræðir við góða gesti um það hvernig þau völdu sér háskólanám, pælingar þeirra varðandi menntun og reynslu þeirra af náminu.
Taktu stökkið er hlaðvarp á vegum Háskólanám.is í umsjón Benedikts Karlssonar.
„Meiri líkur á að þú náir langt ef þú setur þig í aðstæðurnar.“
Birgitta byrjaði háskólagönguna í tannsmíði, fór þaðan í tannlækninn en fattaði að hún hafði valið nám út af status frekar en áhuga – svo hún skipti. Hún er núna að læra lífefna- og sameindalíffræði, og segir að það sé alveg jafn mikilvægt að komast að því hvað maður vill ekki gera, þá sé maður nær því að finna sína réttu hillu.
2 May 2024
„Ég gerði þetta á mínum hraða“
Sigurður Jefferson var að klára sálfræði í Háskólanum í Reykjavík, en samhliða náminu spilaði hann handbolta með HK í Olís deildinni og æfði amerískan fótbolta. Sigurður hafði aldrei stefnt neitt sérstaklega að sálfræði og tók ákvörðunina kvöldið sem hann skráði sig, en eftir því sem hann lærði meira jókst áhuginn. Í dag finnst honum námið hjálpa sér á mörgum vígstöðvum í lífinu, og þá sérstaklega í íþróttunum, sem hafa alltaf verið númer eitt.
2 May 2024
„Ég er fyrst í fjölskyldunni til að fara í háskóla“
Þótt Kinga hún hafi fyrst byrjað í viðskiptafræði vissi hún strax að tölvunarfræði væri eitthvað fyrir hana þegar hún tók áfanga í forritun. Hún starfar núna sem bakendaforritari eftir að hafa unnið lokaverkefni fyrir Origo sem varð að fullu starfi eftir útskrift.
1 May 2024
„Ef þú hittir ekki á rétt nám, þá skiptirðu bara.“
Eyvindi datt ekki í hug að hann myndi nokkurn tímann vinna á spítala, en eftir að hafa klárað BA gráðu í lögfræði og dregist í meistaranámi ákvað hann að skrá sig í hjúkrunarfræði. Hann segir að það sé mikilvægast að fylgja sjálfum sér, hætta ef þér finnst eitthvað leiðinlegt til að finna þér eitthvað skemmtilegra, og leyfa sér að taka stökkið.
Contact Taktu stökkið
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Taktu stökkið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine