Temjum tæknina er hlaðvarp um gervigreind og fólk. Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri við Háskólann á Akureyri, tekur á móti gestum og ræðir tækni, spunagreind, sjálfvirkni og áhrif tæknibyltinga á daglegt líf.
Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum – allt frá sérfræðingum til þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref í tækninni. Áherslan er á mannlegar sögur og tengsl tækni við samfélagið í víðum skilningi og áhrif á ólíkar greinar.
#S2-10 Eyjólfur Guðmundsson - Hvað setur þú í magnarann?
Samtal við Eyjólf Guðmundsson — fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, deildarforseta við Landbúnaðarháskóla Íslands og fyrrverandi hagfræðing hjá CCP (EVE Online). Gervigreindin sem magnari, LLM eins og Minecraft, fatan sem hver kynslóð fyllir, velviljaða búrið og fullveldi yfir eigin gögnum — og af hverju þetta snýst um stjórnarhætti, ekki tækni.
10 Jun 2026
#S2-09 Pietro Segreto - Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin?
Íslenska:Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin? Ég ræði við Pietro Segreto, ítalskan doktorsnema sem rannsakar gervigreind í útgáfu, um hvers vegna útgefendur eru í kjarnann hliðverðir þekkingar, hvernig þeir færast frá því að selja bækur yfir í að selja þjónustu byggða á gögnum sínum, og af hverju gögn — ekki líkönin sjálf — eru raunverulega verðmætið. Samtal um sköpun, sjálfstæði (sovereignty), stjórnarhætti og hvers vegna við ættum kannski að tala um stór mállíkön frekar en „gervigreind". (Þátturinn er á ensku.)
English:What happens to publishing when AI enters the picture? I sit down with Pietro Segreto, an Italian PhD student researching AI in the publishing industry, to explore why publishers are at heart the gatekeepers of knowledge, how they're shifting from selling books to selling services built on their data, and why data — not the models themselves — is the real value. A wide-ranging conversation on creativity, sovereignty, governance, and why we might do better to talk about large language models rather than "AI."
22 May 2026
#S2-08 Guðmundur Smári Gunnarsson - Valhöll range-boltanna: Dans, golf, gervigreind og einlendu tegundirnar
Í þessum þætti mætir Guðmundur Smári Gunnarsson. Við ræðum hvernig flókin mannleg færni mótast í taugakerfinu og hvernig líkamsvitund nýtist jafnt í dansi, flugveiði og golfi. Magnús deilir tilraun sinni þar sem hann notar gervigreind til að greina Trackman-gögn og hreyfimyndbönd til að endurbyggja golfsveifluna. Saman velta þeir upp „prompt-prófi“ Guðmundar um einlendu dýrin á Íslandi, „2026-stimplinum“ sem frystir vinnustaði í fortíðinni og húmor tækninnar gagnvart range-boltum á leið til Valhallar.
Who has been a guest on Temjum tæknina
Names identified in recent episode analyses. Showing up to five guests.
Sigrún Stefánsdóttir
Smári Sigurðsson
Lilja Dögg Jónsdóttir
Dr Roberto Buccola
Professor Giorgio Baruchello
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
10 ratings
Host of Temjum tæknina?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine