Enn fáum við nýtt sjónarhorn á teymisþjálfun. Að þessu sinni er það Anna Valgerður Sigurðardóttir, mannauðsráðgjafi hjá sveitarfélaginu Árborg, sem deilir sinni reynslu. Hún færir okkur fjölbreytt sjónarhorn, hlið mannauðsstjórnunar, sveitarfélags og skólamenningar á teymisvinnu og teymisþjálfun, og segir frá því hvernig hún hefur unnið með teymisþjálfun í því umhverfi. Að venju kynnumst við líka Önnu á persónulegum nótum, hvaðan hún kemur og hver hennar saga er inn á vettvang teymisþjálfunar.
19 Apr 2026
Torben Nielsen #2
Þá er komið aftur að Torben Nielsen. Í fyrsta samtali okkar frá júní 2025 kynntum við hann og hugmyndafræðina að baki Conscious Consulting. Í þetta skipti förum við nánar í það hvernig þau vinna með sínum kúnnum.
Við ræðum meðal annars hversu löng vegferðin er með kúnnanum — oft 4–5 ár — og hvernig hún skiptist upp í ákveðna fasa. Torben deilir líka sjónarmiðum sínum um hvað hann telur algengustu vandamálin sem hann sér í menningu fyrirtækja og hvernig Conscious Consulting nálgast þau.
23 Mar 2026
Colin M. Fisher
Í þessum þætti tala ég við prófessor Colin M. Fisher um vísindin á bak við bókina hans, The Collective Edge, sem kom út árið 2025. Þetta er að mínu mati ein besta bókin sem gefin hefur verið út um samvinnu fólks á undanförnum árum. Colin er prófessor við University College London's School of Management, en hefur líka þá skemmtilegu og óhefðbundnu baksögu að hafa verið atvinnu-jazztrompetleikari.
9 Feb 2026
Sagan mín
Í þessum þætti segi ég frá minni eigin vegferð inn í teymisþjálfun - hvaðan ég kem og fer yfir eitthvað af þeim hugmyndum, reynslu, fólki og umhverfi sem hefur haft mótandi áhrif á mig sem teymisþjálfara og manneskju.
19 Jun 2025
Torben Nielsen
Torben Nielsen shares his personal development journey and the philosophy behind Conscious Consulting, a firm focused on human advancement with locations in Denmark and Iceland, in an interview.
9 Apr 2025
Dr. Catherine Carr
Nú er komið að sjónarhorni handleiðslumeistara og reynslubolta í þjálfun teymisþjálfara sem og í teymisþjálfun, og það er engin önnur en Dr. Catherine Carr.
Ég var svo heppinn að kynnast henni í teymisþjálfunarnámi sem ég var í fyrir nokkrum árum og fékk að velja hana sem handleiðara í því námi. Það hélt áfram eftir námið en ekki nóg með það heldur var ég (og nemendurnir 😀) svo ljómandi heppinn að fá hana til liðs við mig með teymisþjálfunarnámið sem ég býð upp á hér á landi, þar sem hún sér um handleiðslu þátttakenda.
Hún er stjórnenda- og teymisþjálfari, kennari (Systemic Team Coaching), rithöfundur, handleiðari og margt fleira. Það er skemmtilegt frá að segja að bókin Team of Teams, sem hún skrifar með Dr. Peter Hawkins, kemur út núna í júní 2025.
Í þættinum segir hún okkur frá hennar vegferð og við skoðum allskonar varðandi teymisþjálfun, til dæmis hvernig eitt stykki teymisþjálfunarvegferð með teymi getur litið út. Samtalið er á ensku.
11 Feb 2025
Thor Ólafsson
Í þessum fimmta þætti ræði ég við Thor Ólafsson um teymisþjálfun út frá sjónarhóli leiðtogaþjálfunar. Thor er sannkallaður reynslubolti, með áratuga reynslu af leiðtogaþjálfun á efstu stigum, bæði hérlendis og erlendis. Fyrirtæki hans, Strategic Leaders, starfrækir í dag skrifstofur í þremur löndum.
Ég sá fyrst til Thors árið 2014 þegar hann hélt erindi um Innri Áttavitann, og í þessum þætti fáum við að heyra magnaða sögu um hvernig hann varð til – sem og margt fleira.
Góða skemmtun! 🎧
26 Jan 2025
Guðrún Aðalsteinsdóttir
Nú er komið að sjónarhorni leiðtogans á teymi og teymisþjálfun og það er hún Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, sem spjallar við mig um sína vegferð, leiðtogahlutverk og teymispælingar. Guðrún hefur spilað allskonar hlutverk, bæði hérlendis og erlendis og því sérlega ánægjulegt að fá hana í þáttinn.
12 Dec 2024
Daði Ingólfsson
Daði Ingólfsson, a seasoned Agile practitioner, shares his expertise on implementing and spreading Agile methodologies in Iceland, leveraging his extensive experience and collaborations with industry leaders.
2 Dec 2024
Gestur Pálmason
Gestur Pálmason, teymisþjálfari at Complete Coherence, shares insights on teymisþjálfun and international experience, offering valuable lessons on effective coaching and leadership.
25 Nov 2024
Kristrún Anna Konráðsdóttir
Í þessum fyrsta þætti ræði ég við Kristrúnu Önnu Konráðsdóttur sem er sjálfstætt starfandi teymisþjálfari. Hún hefur heldur betur verið að viða að sér þekkingu og reynslu undanfarin misseri og er á fleygiferð í faginu. Það er því sannarlega gleðiefni að fá hana í þáttinn að deila sögu sinni, reynslu og hugmyndum um teymi og teymisþjálfun, og af hverju hún er í þessu fagi í dag.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
4.8 / 5
5 ratings
Contact Teymisþjálfarinn
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Teymisþjálfarinn?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine