Hversdagsleikinn getur heltekið okkur. Það er ekkert meira grámygluhversdagslegt og þriðjudagar. En við gefum skít í það og kúplum okkur aðeins út og veltum hlutunum fyrir okkur.
Í þessum lokaþætti, í bili að minnsta kosti, lítur Pétur aðeins til baka á þættina 24. Vangavelturnar í þessum þætti er um sjálfið okkar eða egóið. Hvar eru skilin á því að vera fullur af sjálfum sér, egóisti eða vera ekki nógu góður við sig? En hver er munurinn á að njóta en ekki þjóta og að hafa gaman? Eða er það sami hluturinn? Síðasta vangavelta hlaðvarpsins er svo um það hvað það er að vera farsæll? Kannski er það að vakna brosandi á hverjum degi…
5 Dec 2023
24.Jólin eru...
Í þessum þætti talar Pétur um birtingarmynd jólanna, kannski ekki síst fyrir börnin. Jólin eru barnsleg eftirvæntingin, það eru ýmsir viðburðir, það er uppbygging alla aðventuna, dagatal, skór í glugga og álfur sem gerir óskunda.Svo kemur jóladagur og þá eru pakkarnir uppteknir, ekkert í skónum, ekkert dagatal og álfurinn farinn heim. Eru jólin því bara eftirvæntingin og tilhlökkunin? Því getur hver og einn svarað fyrir sig.
28 Nov 2023
23.Svona eru jólin
Í þessari viku er litið til aðventunar sem senn gengur í garð. Pétur ræðir um neysluhyggju okkar, um kvíðann sem getur dunið yfir þegar jólin nálgast, jólakvíði. Það þarf að finna réttu gjafirnar og standa sig í jólaboðum en svo þarf líka að huga að heilsunni og réttu buxnastærðinni. Hún getur verið breytileg ef þú ætlar til dæmis að smakka alla jólabjórana sem koma á markaðinn. Eða fara á öll jólahlaðborðin sem eru í boði á svæðinu. Svo getur aðventan, sem er oft með marga viðburði í b...
Contact Það er alltaf þriðjudagur
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Það er alltaf þriðjudagur?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine