Tvær bugaðar, þreyttar mæður á besta aldri sem ákváðu,í augnabliki af ofmati á eigin getu, að byrja podcast.
Hugarfarið okkar hefur alltaf verið að þetta reddist… einhvern veginn. Og hingað erum við komnar, með kaffi í annarri og taugaáfall í hinni.
Við getum ómögulega lofað neinu þema, enda er lífið sjálft nógu mikið rugl og við fylgjum bara straumnum (og stundum ekki einu sinni því).
En eitt er víst: við hlæjum, kvörtum, deilum og lifum af – og vonandi hlæið þið með okkur… eða að okkur.
Það var þá! Eftir langt sumarfrí og rútínuleysi hittumst við stöllur loksins og tókum upp. Framkvæmdin tók sinn tíma enda smá flækja að ná okkur á sama stað á sama tíma.
Við fórum yfir víðan völl og titill þáttar gefur smá innsýn í spjallið sem fór frá því að vera alvörugefið og svo ekki eins!
Vonandi skemmtið þið ykkur jafn vel við hlustir og við gerðum við að taka upp!
30 Jun 2026
Aperol, skyldfólk og Tenerife
VÁ! Dásemdar ferð á enda til eyju allra Íslendinga, Tenerife. Hugsa að brosið fari ekki af okkur næstu mánuðina. Mikið hlegið, borðar og drukkið. Svo kom það á daginn að Svanhildur á bara heilmikið af skyldfólki á Tene! Who would have thought!
Vonandi náið þið að skemmta ykkur yfir þessum!
Við erum svo komnar í smá frí en komum hressar til baka í ágúst :)
10 Jun 2026
Fæddar til að ferðast saman
Smá ferðalag hjá okkur vinkonum um memory lane. Við fórum yfir ferðalögin sem við höfum farið í saman gegnum árin OG fórum yfir fyrirhugaða ferð sem er bara handan við hornið! Mögulega smá yfirspenntar en hey! það má og ég meina ef undirbúningurinn var svona geggjaður þá er nú varla að ferðin klikki!
27 May 2026
Horror, hafmeyjur og húsdýr
Það ætti ekki að koma ykkur á óvart að við vinkonurnar fórum um víðan völl í upptökum vikunnar.
Þyngdaraflið kom til tals, hafmeyjur, barnauppeldi og húsdýr.
Mikið hlegið og við skemmtum okkur konunglega!
Ef þið hafið gaman af þá megið þig endilega slást í hópinn á Instagram síðu okkar.
15 May 2026
Táknmál, dúfur og nuddari frá helvíti
Þessi þáttur var ansi strembin í fæðingu og má í raun segja að þetta hafi endað með keisara. En þetta hafðist á endanum og skemmtum við okkur konunglega!
Við fórum yfir víðan völl. Eins og alltaf þá reynum við að finna húmorinn í áskorunum lífsins.
Vonum þið njótið og ef þið viljið koma athugasemdum áleiðis þá erum við komnar með Instagram síðu - Thettareddastpodcast.
30 Apr 2026
Andlit á glugga, félagar í skógi og murder mystery?
Smá rannsóknarvinna hjá okkur stöllum!
Hvað í ósköpunum erum við að lesa og syngja fyrir börnin okkar? Við ritrýndum þekktar sögur og kvæði sem við höfum flest lesið og sungið. Eftir að hafa rýnt í textana þá ætlum við mögulega að endurskoða hvað verður framvegis fyrir valinu!
24 Apr 2026
Málsháttamálið mikla, klikkhaus í pontu og klósettpappírsskortur!
Málsháttarmálinu miklu er nú formlega lokið. Að sjálfsögðu gekk það ekki alveg þrautarlaust fyrir sig. Við ræddum nokkrar fréttir úr liðinni viku og tímann sem klósettpappír var orðinn söluhæsta varan á Íslandi.
17 Apr 2026
Hebreska og húllumhæ
Enn og aftur er lagt af stað með plan en eins og okkur er lagið þá fórum við lengri leiðina. Samtalið fór frá Jerúsalem yfir til Góu og enduðum á mannanafnanefnd.
12 Apr 2026
Sjálfsmildi, páskaeggjaskandall og málshættir
Eins og vanalega þá fórum við um víðan völl. Byrjuðum á alvarlegri nótum sem endaði í skandal tengt páskunum og svo misstum við mögulega aðeins þráðinn!
5 Apr 2026
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
29 Mar 2026
Barnaland, Pamela Anderson og Gulli Helga.
Umræðuefni þáttarins fór um víðan völl. Við ræddum um Barnaland og samfélagsmiðla, misjafnan árangur okkar af googli og af hverju við ákváðum að byrja með podcast.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
2 ratings
Contact Þetta Reddast
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Þetta Reddast?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine