#54 - Bjart er yfir birtingum - Bjartur Ari Hansson
Eyveijo aueyseiveijo
Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað grimmt.
Það er einnig mikil Hafnarfjarðarslagsíða í þessum þætti því Bjartur hefur verið innvinklaður í Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar frá barnsaldri og förum við því líka yfir þeirra veiðisvæði og félagið.
Það fór virkilega vel á með okkur félögunum og nutum við vel og vonum við að þið njótið.
26 Mar 2025
#53 - Masterclass með Lewis - Lewis Hendrie
Veiiiióveiveiheyveiheyjó
Lewis Hendrie og Ólafur Hilmar Foss mættu í þáttinn að þessu sinni. Óla þarf kannski ekki að kynna fyrir hlustendum því hann hefur áður verið gestur í þættinum en nú mætir hann með veiðivini sínum, Lewis. En Lewis sá er mikill veiðimaður og keppir í fluguveiði með enska landsliðinu um allan heim og hefur unnið til fjölda verðlauna í sportinu. Við fræddumst um veiðiferil hans og fáum að vita hvernig þessar keppnir fara fram og hvaða aðferðum er keppt í. Við fáum að vita allt um að mastera euro nymphing-tæknina og hvað ber að forðast en Lewis er þekktur fyrir að vera einstaklega óheppinn. Ef eitthvað getur farið úrskeiðis er næstum víst að það gerir það.
Við vonum að þið njótið, við nutum.
6 Mar 2025
#52 - Alexander hinn, hinn mikli - Alexander Stefánsson
Eyveyieyjo aveyio
Gestur vikunnar er hinn eini sanni Alexander Stefánsson sem er oft kenndur við Alexander mikla, gríska konunginn, en marktækasti munurinn á þeim er jú kannski veiðiþekking og annað smotterí. Sá mikli var til dæmis ekki mikið inni í sjóbirtings- og laxveiðum en þar kemur okkar maður sterkur inn. Alexander kom og spjallaði við okkur um sinn veiðiferil og veiðisvæði sem hann hefur stundað í gegnum árin. Hann er mikill náttúrudýrkandi og við fórum yfir víðan völl, allt frá stórum sjóbirtingum yfir í að kafa með hákörlum út um allan heim.
Njótið vel, það gerðum við
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
4.8 / 5
78 ratings
Contact Þrír á stöng
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Þrír á stöng?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine