Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni.
Fáðu fleiri þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
Fyrsti Halloween þátturinn í sögu Trivíaleikanna! Djöfullegur Daníel settist niður með liðunum tveimur og skaut hátt í 50 alblóðugum og hryllilegum hrekkjavökuspurningum á þau án afláts. Andsetinn Arnór og Jarðafarar-Jón mættu Myrkrahöfðingjanum Magnúsi og Martraðar-Marínu í stúdíói sem sett var upp í drungalegri pyntingardýflissu á ónefndum stað einhvers staðar á hálendi Íslands. Hlustaðu strax - hér er hrekkjavaka eða Halloween eins og þú hefur aldrei kynnst henni áður. Komdu þér fyrir, helltu þér upp á kaldann drykk og hlustaðu á fyrsta Halloween þáttinn okkar!
Keppendur: Arnór Steinn, Magnús Hrafn, Jón Hlífar og Marín Eydal.
6 Sept 2026
57. Ég kom, ég sá, ég Kröddaði
Jæja sumarfríið er á enda og Trivíaleikarnir snúa aftur með hvelli! Við droppuðum líka 9 þáttum á Patreon í sumar - tékkaðu á því og þig mun aldrei skorta þátt. Að þessu sinni kíktu Kristján, Ingi, Öddi og Heiðdís María í stúdíóið í einn löðrandi sveittan þátt af smáþekkingu og fróðleik. Hvaða evrópska höfuðborg stendur hæst yfir sjávarmáli? Hvers konar drykkur er Chablis? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Einnig settum við upp auglýsingu fyrir umsóknum fyrir þá sem vilja vera með í þáttunum, þú finnur hlekk á umsóknarformið inni á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net.
Keppendur: Heiðdís María, Ingi, Kristján og Haraldur Örn.
27 Jul 2026
Refskák II (Frír Patreon þáttur)
Já það er smá sumarfrí í gangi hjá okkur í Trivíaleikunum og því enginn þáttur í júlí - en það er aldrei sumarfrí á Patreon og því bjóðum við hlustendum í staðinn upp á einn af nyju Patreon þáttunum okkar til að prófa. Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Marín Eydal kíktu öll í stúdíóið til Daníels og spreyttu sig á nýju Refskákinni en hún samanstendur af hraðaspurningum og Einvígi - Það hljómar bara eins og ansi góður kokteill ef þú spyrð okkur!
Who has been a guest on Trivíaleikarnir
Names identified in recent episode analyses. Showing up to five guests.
Marín Eydal
Daníel Óli
Haraldur Örn
Kristján
Arnór Steinn
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Spotify
5.0 / 5
111 ratings
Contact Trivíaleikarnir
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine