Við kynnumst einstaklingum sem hafa greinst með krabbamein og heyrum um áhrif sjúkdómsins á líf ungrar manneskju. Einlægar frásagnir um erfiða baráttu og kjarkinn sem þarf til þess að takast á við lífshættulegan sjúkdóm.
Hulda Hjálmarsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri Krafts, var aðeins 15 ára þegar hún greindist með hvítblæði.
Hulda greinir hér frá upplifun sinni og hvernig baráttan mótaði lífsýn hennar og samskipti við hennar nánustu.
29 Jul 2020
#10 Jóhann Björn Sigurbjörnsson
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, landsliðsmaður í frjálsum íþróttum, er að takast á við mikil veikindi en hann greindist með Hodgkins eitlakrabbamein í febrúar sl. og er í miðri lyfjameðferð. Jóhann Björn keppti í 100 og 200 metra spretthlaupi á Smáþjóðaleikunum í Skopje í Makedóníu í fyrra fyrir Íslands hönd. Hann er gestur Maríu Bjarkar í þessum þætti.
4 Feb 2020
#9 Hulda Hjálmarsdóttir og Sara Ómarsdóttir - Kraftur
Stuðningur við ungt fólk sem greinist með krabbamein er mörgum gífurlega mikilvægur.
María Björk ræðir hér við Huldu Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra Krafts og Söru Ómarsdóttur hjá Norðan-Krafti um hlutverk samtakanna og mikilvægi þess að mynda stuðningsnet.
13 Dec 2019
#8 Sigurður Gísli Gunnarsson
Sigurður Gísli Gunnlaugsson er 31 árs og býr á Akureyri. Hann fékk beinkrabba 11 ára sem tókst að lækna. Síðan þá hefur hann misst báða foreldra sína úr krabbameini og afa sína og ömmur einnig.
Eftir síðasta áfallið, þegar pabbi hans dó, greindist Sigurður Gísli með geðhvarfasýki. Sigurður segir Maríu Björk frá áföllunum og gleði í lífinu.
4 Nov 2019
#7 Halla Rut Stefánsdóttir
Ungt fólk og krabbamein: Halla Rut Stefánsdóttir
Hún var að halda uppá fertugsafmælið sitt í Búdapest þegar hún uppgötvaði mein í öðru brjóstinu. Við tók erfiður tími í lyfjameðferðum og skurðaðgerðum. Séra Halla Rut Stefánsdóttir á Hofsósi segir Maríu Björk baráttusögu síðustu tveggja ára.
2 Oct 2019
#6 Stefán Haukur Björnsson Waage
Stefán Haukur Björnsson Waage er viðmælandi þáttarins. Hann var aðeins 18 ára þegar pabbi hans, Björn Stefánsson frá Hesjuvöllum lést eftir snarpa baráttu við krabbamein í maga fyrir sléttum tveimur árum, þá 53 ára að aldri.
Við kynnumst því hvernig missirinn, sorgin og sorgarferlið hefur snert Stefán Hauk.
28 Aug 2019
#5 Jón Gunnlaugur Stefánsson
Jón Gunnlaugur Stefánsson á Akureyri greindist með afar sjaldgæft krabbamein í eista fyrir rúmu ári og hefur gengið í gegnum stranga meðferð. Hann fór að ráðum vinar síns sem einnig hafði fengið krabbamein í eistu og gekk ákveðið eftir því að fá rétta greiningu. Þó það hafi verið áfall var það á sama tíma léttir að vita hvað væri að.
Jonni segir að stuðningur fjölskyldunnar hafi skipt sköpum og fagmennskan hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis hafi fleytt þeim öllum yfir erfiðustu hindranirnar.
28 Aug 2019
#4 Magnea Karen Svavarsdóttir
Magnea Karen Svavarsdóttir á Akureyri greindist með krabbamein í brjósti fyrri fimm árum, þá með hálfsárs gamla dóttur, aðra 3 ára og elstu 5 ára. Hún er með "bracca" genið eins og stór hluti föðurfjölskyldunnar en hún missti fjögur þeirra á rúmu ári úr krabbameini. Nú glímir hún við krabbamein í skjaldkirtli.
28 Aug 2019
#3 Sigríður Þorsteinsdóttir
Sigríður Þorsteinsdóttir er 27 ára vöruflutningabílstjóri á Akureyri. Hún greindist 2017 með húð- og eitilfrumukrabbamein og er önnur tveggja á Íslandi með slíkt krabbamein.
Við heyrum einstaka sögu hennar, fylgjum henni í ræktina þar sem hún viðheldur kraftinum, förum með henni inn á Norðankraft, ræðum við móður hennar og bestu vinkonu.
28 Aug 2019
#2 Þórunn Kristín Sigurðardóttir
Þórunn Kristín Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur var 31 árs þegar hún greindist með Hodgkin´s eitilfrumukrabbamein.
Þá var hún í miðju framhaldsnámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu, einstæð með 6 ára gamla dóttur.
28 Aug 2019
#1 Baldvin Rúnarsson
Baldvin Rúnarsson var 19 ára gamall, að hefja nám á fjórða ári við Menntaskólann á Akureyri, þegar að hann greindist með stórt heilaæxli. Hann hefur tekist á við sín veikindi af miklu æðruleysi og þótt brekkurnar hafi verið margar og brattar þá fer hann þær að því er virðist með jákvæðni og bjartsýni í farteskinu, vel studdur af fjölskyldu og vinum. Í dag er hann 25 ára og starfar sem, knattspyrnuþjálfari hjá Þór á Akureyri. Í fyrsta þætti af Ungt fólk og krabbamein á N4 fengum við að kynnast Baldvini og heyra hans sögu.
Contact Ungt Fólk og Krabbamein
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Ungt Fólk og Krabbamein?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine