Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.
24.þáttur Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra.
Við ræðum stöðu efnahagsmála og áhrif hennar á íslenskan landbúnað. Þar kemur meðal annars til hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu, sem getur skilað sér í auknum kostnaði við innflutning, flutninga og framleiðslu og þar með aukið verðþrýsting hér á landi. Búvörusamningar koma einnig við sögu og fleira.
3 Sept 2026
23. þáttur Margrét Ágústa Sigurðardóttir
Nú liggur fyrir að ekki verður af aðildarviðræðum við Evrópusambandið eftir að þjóðin sagði skoðun sína á málinu í kosningunum síðastliðinn laugardag. Úrslitin voru nokkuð afgerandi og ljóst að nú þarf ríkisstjórnin að endurhugsa ýmislegt, þar á meðal það hvernig hún ætlar að haga samningum sínum við bændur sem standa fyrir dyrum en búvörusamningar renna út í lok árs 2027. Við ætlum að velta þessari stöðu fyrir okkur og horfa fram á við. Gestur þáttarins er Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
25 Aug 2026
22. þáttur Hanna Katrín Friðriksson og Trausti Hjálmarsson
Eftir nokkra daga liggur fyrir hvort Íslendingar vilja taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrir bændur snýst þetta ekki aðeins um Evrópumál heldur framtíð íslenskrar matvælaframleiðslu. Hvað er í raun í húfi?
Gestir þáttarins eru Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
2 ratings
Contact Útvarp Bændablaðið
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Útvarp Bændablaðið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine