Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Nálgast má Vikulokin í mynd í beinni útsendingu á ruv.is á laugardagsmorgnum, og í sjónvarps spilara RÚV.
Verslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins.
Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa og Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku ræða Ingvar Þór Björnsson.
Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræða raforkuframleiðslu og virkjunarkosti í öðrum hluta þáttarins.
Í lokin mæta Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og fara yfir stöðuna í stjórnmálunum.
31 Oct 2026
Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki
Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins.
Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú.
Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.
24 Oct 2026
Mótmæli í Evrópu, menntamál og tíðindi af þingi
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag.
Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson, frumkvöðull, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB.
Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi.
Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Víðir Reynisson, Samfylkingu, um tíðindaleysi á þingi, menntamál og Litla spítalann.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
4 ratings
Spotify
4.0 / 5
10 ratings
Contact Vikulokin
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine