Fljótandi ferðalag um veröld víns og veiga. Rætt er við aðila úr vín- og veitingageiranum um vín frá þekktustu vínlöndum heimsins. Við kynnumst vínum, vínfræðum og fólkinu úr geiranum.
Í þessum þætti förum við í ferðalag um tvö virtustu vínhéruð Spánar: DOCa Rioja og DOQ Priorat. Þetta eru einu svæðin á Spáni sem hafa hlotið hæsta gæðastimpil spænska vínkerfisins þrátt fyrir það að vera gjörólík í stíl, landslagi og víngerð. Við ræðum sögu og þróun svæðanna, þrúgurnar og stílinn, jarðveg og landslag og opnum með spjallinu flösku af Burgo Viejo Reserva frá DOCa Rioja ásamt flösku af Ruela frá DOQ Priorat og berum saman. Svo hellið ykkur í glas, komið ykkur vel fyrir og njótið ferðalagsins.
14 Nov 2025
#07 Dóri DNA og náttúruvínin
Hver er munurinn á lífrænt ræktuðu víni og náttúruvíni? Eru til fleiri aðferðir sem byggja á svipaðri aðferðarfræði? Í þessum þætti skoðum við þessi mál með áherslu á náttúrvínin. Við ræðum hvernig þau eru framleidd og hvað það er sem gerir þau frábrugðin öðrum vínum. Til að kynnast þessu betur fáum við vínvin okkar í heimsókn hann Halldór Laxnes Halldórsson, eða Dóra DNA, og spjöllum við hann um eðalvín (náttúruvín), vínbransann og hans reynslu um leið og við gæðum okkur á Benedicte & Stephane Tissot Arbois Savagnin hvítvíni frá Jura í Frakklandi.
31 Oct 2025
#06 Heiðrún vínkona og Corpinnat
Í þessum þætti tölum við um vínkynningar. Við fáum til okkar vínkonuna, Heiðrúnu Mjöll Jóhannesdóttur, sem er vel þekkt fyrir vínkynningar en hún stofnaði fyrirtækið Vínvísar einmitt í þeim tilgangi að fræða fólk um vín á mannamáli. Með spjallinu gæðum við okkur á flösku af Llopart Corpinnat og lærum allt um Corpinnat og hvað það er sem gerir það frábrugðið Cava.
17 Oct 2025
#05 Vínsmökkun og dómar
Hvað gerir vín að góðu víni, og er til vont vín? Hverju erum við í raun að leita að þegar við smökkum vín, og hvernig ber maður sig að í vínsmökkun?
Í þessum þætti kynnum við okkur helstu hugtök og aðferðir vínsmökkunar og fáum til okkar vínvin sem þekkir þetta betur en flestir, hann Þorra Hringsson. Hann leiðir okkur í gegnum ferlið á lifandi og skiljanlegan hátt, á meðan við gæðum okkur á einstöku víni: Dr. Loosen Erdener Prälat Riesling Auslese 1995.
3 Oct 2025
#04 Bragð í Barselóna
Í þessum þætti fáum við Sóleyju Björk Guðmundsdóttir, vínfræðing og vínvin, í heimsókn til að ræða um spænsk vín og vínhéruð. Sóley hefur hefur lokið WSET Level 2 og 3 og sérhæft sig í vínum frá Spáni, þar sem hún hefur bæði lært og starfað til margra ára. Við ræðum um spænska vínmenningu og víngerð, tölum um vín allt frá Kanarí til DOQ Priorat og kynnumst um leið Sóleyju og hvernig áhugi hennar á vínum kom til. Með spjallinu opnum við 2 flöskur af Garnacha vinum, Ruella og La Guinardera, og kynnumst þessari frábæru þrúgu.
19 Sept 2025
#03 Fiskmarkaðurinn, Kampavín og Riesling
Í þessum þætti fáum við Styrmi Bjarka Smárason vínvin í heimsókn og förum aðeins yfir ferilinn hans. Við ræðum um reksturinn, Kampavínsfélagið, samstarfið, rekstarumhverfið og svo margt fleira. Með spjallinu opnum við flösku af Riesling Ried Klostersatz frá Weingut F.X. Pichler og fræðumst aðeins meira um Riesling þrúguna og framleiðandann.
5 Sept 2025
#02 Vínmenning á Íslandi
Í þessum þætti fáum við Gissur Kristinsson vínvin í heimsókn og förum létt yfir vínsögu Íslands, Áfengisverslun Ríkisins og hvernig vínmenning landsins hefur þróast í gegnum árin. Á meðan við spjöllum um vínsöguna, vínmenningu okkar íslendinga og margt fleira þá opnum við flösku af Hugel Riesling Grossi Laue frá Alsace í Frakklandi og fræðumst aðeins um Riesling þrúguna og samtök sem kölluðu sig ABC.
22 Aug 2025
#01 Óþekkti Gústi á Grillmarkaðnum
Í dag kynnum við Vínvarpið til sögunnar og ræðum við Ágúst Reynisson, alla jafna þekktur sem Gústi á Grillmarkaðnum, um vín og veitingar. Með spjallinu opnum við flösku af Torres Mas La Plana frá D.O. Penedes sem á sér merkilega sögu og spilaði skemmtilegt hlutverk í einum af veitingastöðum Gústa í góðærinu á meðan við ræðum um upphafið og ferilinn hans Gústa, kynnumst persónunni og hvað það er sem gerir vínbransann svona heillandi.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Contact Vínvarpið
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Vínvarpið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine