Podcast thumbnail for Vörumerki

by Margrét Björk Jónsdóttir

17 episodes
Updated Daily
Accepts GuestsHas SponsorsLocation 🇮🇸

Podcast Overview

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma!

Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?

Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs.

Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

Language

Publishing Since

10/14/2025

Reach the team behind Vörumerki

Verified contact details for this show aren't on file yet — sign up to get notified when they land.

Recent Episodes

Episode thumbnail for S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá

July 23, 2026

S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir er frumkvöðull, markþjálfi, markaðsfræðingur, gusumeistari og annar stofnenda Munum- vörumerkis sem hófst sem dagbók en hefur síðan þróast í mun stærri sýn og samfélag í kringum heilsu og vellíðan. Í þættinum ræðum við hvernig hugmyndin að Munum varð til og hvernig dagbókin seldist í allt að 12.000 eintökum á ári, þrátt fyrir vantrú margra á verkefninu í upphafi. Þóra segir einnig frá útrásinni sem þær fóru af stað með, hvers vegna þær ákváðu að hætta við hana og hvað sú ákvörðun kenndi þeim um vöxt, metnað og mikilvægi þess að vita hvenær tími er kominn til að breyta um stefnu. Þóra ræðir einnig hvernig hún velur verkefni út frá gildunum sínum, hvers vegna hún hefur sagt nei við öruggari leiðum og frá risastóru verkefni sem hún stefnir á að koma í framkvæmd. Við hlustun færð þú meðal annars: Innsýn í hvernig hugmynd getur orðið að raunverulegu vörumerki Hagnýt dæmi um fjármögnun, vöxt og erfiðar ákvarðanir Lærdóm af útrás sem var stöðvuð og stefnunni breytt Nýtt sjónarhorn á hugrekki, ótta og eftirsjá Skilning á því hvernig gildi geta hjálpað þér að taka skýrari ákvarðanir Innblástur til að láta vaða, jafnvel þótt óttinn sé enn til staðar Þóra er stútfull af orku og hugmyndum og svo mikilli ástríðu fyrir verkefnunum sínum að það er ekki hægt annað en að fyllast innblæstri og  hrífast með. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru með hugmynd í maganum, standa frammi fyrir breytingum eða finna að þeir þurfa meira frelsi, meiri gleði og/ eða skýrari stefnu í lífið. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

Episode thumbnail for S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki

July 16, 2026

S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki

Þessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana. Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri. Í þættinum ræðum við meðal annars: - Framleiðsluferlið og þær óvæntu áskoranir sem koma upp þegar hugmynd á að verða að alvöru vöru- Umbúðirnar og hversu stóru hlutverk þær gegna í upplifuninni af vörumerkinu- Hvernig kokteilskóli fjármagnaði fyrstu framleiðsluna- Fyrsta fundinn með Hagkaup, þar sem Ásthildur mætti með frumgerð sem var, að hennar eigin sögn, „basically blað“- Samfélagsmiðla, frumkvöðlalífið og uppbyggingu vörumerkis frá grunni, frá hugmynd og konsepti yfir í sölu og dreifingu.- Spennandi hluti framundan hjá Mist & Co.  Mist & Co. er þó ekki eina fyrirtækið sem Ásthildur hefur komið á laggirnar. Hún og kærasti hennar stofnuðu einnig Kokteilskólann og Reykjavík Cocktails, samhliða því að eignast tvö börn á síðustu árum. Þetta er þáttur fyrir alla sem vantar innblástur til að byrja, framkvæma og halda áfram, fullur af raunverulegum ráðum og innsýn í allt það sem gerist á bak við tjöldin þegar vörumerki verður til. Og já… þú vilt líklega fara að þrífa förðunarburstana þína eftir þennan þátt. 🫣🦠- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

Episode thumbnail for S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið

July 9, 2026

S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið

Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Er „branding vs. sala“ röng spurning? Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna? Hvaða íslensku áhrifavaldar standa sig best? Hvernig nær maður athygli fólks á fyrstu 3 sekúndunum? Hvað gerir content áhrifaríkt? Skiptir rétta tilfinningin meira máli en „súpa dagsins“? Andreas hjálpar okkur að setja hlutina í samhengi þegar kemur að skilaboðum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og vexti. Þetta er þáttur fyrir frumkvöðla, fyrirtækjaeigendur, markaðsfólk og alla sem hafa einhvern tímann hugsað: „Við þurfum að vera virkari á samfélagsmiðlum… en hvað eigum við eiginlega að gera?“ -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

17 total episodes available

Deep-dive analytics for Vörumerki

Frequently asked questions

Have a different question and can't find the answer you're looking for? Reach out to our support team by sending us an email and we'll get back to you as soon as we can.

What is Vörumerki?

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma!

Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?

Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs.

Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

How often does this podcast release new episodes?

This podcast updates daily.

Where can I listen to this podcast?

This podcast is available on 4 platforms including Apple Podcasts, Spotify, and more. You can also use the RSS feed directly.

Does this podcast accept guests?

Yes, this podcast regularly features guests.

Legal Disclaimer

Pod Engine is not affiliated with, endorsed by, or officially connected with any of the podcasts displayed on this platform. We operate independently as a podcast discovery and analytics service.

All podcast artwork, thumbnails, and content displayed on this page are the property of their respective owners and are protected by applicable copyright laws. This includes, but is not limited to, podcast cover art, episode artwork, show descriptions, episode titles, transcripts, audio snippets, and any other content originating from the podcast creators or their licensors.

We display this content under fair use principles and/or implied license for the purpose of podcast discovery, information, and commentary. We make no claim of ownership over any podcast content, artwork, or related materials shown on this platform. All trademarks, service marks, and trade names are the property of their respective owners.

While we strive to ensure all content usage is properly authorized, if you are a rights holder and believe your content is being used inappropriately or without proper authorization, please contact us immediately at hey@podengine.ai for prompt review and appropriate action, which may include content removal or proper attribution.

By accessing and using this platform, you acknowledge and agree to respect all applicable copyright laws and intellectual property rights of content owners. Any unauthorized reproduction, distribution, or commercial use of the content displayed on this platform is strictly prohibited.