H fyrir hagfræði #8 – Hvert er markmið atvinnustefnu?
Atvinnustefna ríkisstjórnarinnar hefur nú litið dagsins ljós. Hvað felst í henni og hvað þýðir hún fyrir launafólk? Hefur hún áhrif á atvinnuhorfur næstu kynslóða? Gylfi Zoega hagfræðiprófessor ræðir við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóra Vísbendingar, um atvinnustefnu og menntakerfið og, ekki síst, stöðu efnahagsmála.
17 Apr 2026
H fyrir hagfræði #7 - Hvað er þjóðarsátt?
Ýmsum hugtökum er fleygt fram um þessar mundir í tengslum við kjarasamninga og efnahagsmál. Höfrungahlaup er eitt þeirra, þar sem alþjóðlegur barnaleikur er notaður sem myndlíking. Annað er Þjóðarsátt og þá vísað til þríhliða samninga sem gerðir voru á vinnumarkaði á síðustu öld. En hvað var Þjóðarsáttin og við hvað er átt þegar fólk kallar eftir Þjóðarsátt í dag? Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar fara yfir þetta og fleira ásamt Ögmundi Jónassyni, fyrrverandi ráðherra og fleira, sem var á vettvangi þegar Þjóðarsáttin var gerð. Þau reyna líka fyrir sér í höfrungahlaupi, en það náðist ekki á mynd.
26 Mar 2026
H fyrir hagfræði #6 - Olíukreppan og hagnaðardrifin verðbólga
Verðbólgan mælist nú 5,4% og verðhækkanir á olíu eru farnar að taka til sín. Í nýjasta þætti H fyrir hagfræði fara Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, yfir hvernig verðbólga getur verið keyrð áfram af verðhækkunum. Þá fara þau sérstaklega yfir þau víðtæku áhrif sem olíukreppan gæti haft og hvað er hægt að gera í því.
Gestur þáttarins er Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, sem að hefur lagst yfir heimsmarkaðsverð á olíu og hvernig það getur birst hér á landi.
13 Mar 2026
H fyrir hagfræði #5 - Aðhald í ríkisrekstri
Orðið aðhald kemur fyrir tæplega 300 sinnum í ræðusafni Alþingis á yfirstandandi þingi. En hvað er þetta aðhald? Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, halda áfram að spá í spilin í efnahagsmálum. Gestur þáttarins er Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, sem segir frá því hvernig aðhald í ríkisfjármálum hefur áhrif á stærstu heilbrigðisstofnun landsins.
26 Feb 2026
H fyrir hagfræði #4 - Hagfræði leikskólanna
Hagfræði leikskólanna – er það til? Já, leikskólar eru ein af grunnstoðum samfélagsins og þeir eru þjóðhagslega hagkvæmir. Í nýjasta hlaðvarpsþætti VR, H fyrir hagfræði eru því leikskólarnir aðalumræðuefnið. Í þættinum ræða Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, saman um efnahagsmál, á mannamáli. Gestur þáttarins að þessu sinni er Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, sem fjallar um leikskólana út frá hagfræðinni – en með mýkt og mildi að leiðarljósi.
12 Feb 2026
H fyrir hagfræði #3 – Stýra stýrivextir þér?
Allt hækkar og ekki lækka lánin! Í síðustu viku tilkynnti Seðlabankinn að stýrivextir yrðu óbreyttir. En til hvers eru eiginlega stýrivextir? Í þriðja þætti af hlaðvarpi VR H fyrir hagfræði fjalla Halla Gunnarsdóttir og Ásgeir Brynjar Torfason um tæki til að draga úr verðbólgu. Hávaxtastefnan er komin í þrot, segja þau, hún er hörð við skuldara og leigjendur en ívilnar þeim sem eiga peninga. Gestur þeirra að þessu sinni er Arnaldur Sölvi Kristjánsson, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem hefur einstaklega mikinn áhuga á fjármálum hins opinbera. Hvert er samspilið á milli opinberra fjármála og peningastefnu
29 Jan 2026
H fyrir hagfræði #2 – Verðbólga og náttúrulögmál
Verðbólga er komin yfir 5% samkvæmt nýjustu mælingum Hagstofunnar. Er verðbólgan eitthvað náttúrulögmál? Hvað er vísitala neysluverðs?
Hlaðvarp VR fjallar að þessu sinni um verðbólgu og verðbólgumælingar. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, ræða nýjar verðbólgutölur. Ásta Jenný Sigurðardóttir, sérfræðingur í vísitöludeild Hagstofunnar, útskýrir vísitölu neysluverðs.
15 Jan 2026
H fyrir hagfræði #1 - Atvinnustefnan og Mariana Mazzucato
H fyrir hagfræði er hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað er um efnahagsmál út frá sjónarhóli launafólks. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, kryfja hugmyndir á sviði hagfræðinnar og draga fram tengslin á milli kenninga og dagslegs lífs. Þau fá til sín góða gesti sem hafa sérþekkingu á sviði efnahagsmála og ræða bæði stórar og smáar hugmyndir, allt á mannamáli!
Áherslur hagfræðingsins Mariönu Mazzucato um meiri virkni og aðkomu hins opinbera á mótun atvinnustefnu og þróun atvinnulífs voru til umræðu í nýju hlaðvarpi VR – H fyrir hagfræði – þar sem Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, benti á að forsætisráðherra tali á svipuðum nótum. Mazzucato hélt erindi á fundi um mótun atvinnustefnu Íslands nýlega.
21 Oct 2025
Þessar konur eru algerar hetjur í mínum augum
Í síðasta þættinum af hlaðvarpsseríunni með konum í VR spjallar Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, við reynslumiklar konur úr atvinnulífinu sem hafa einnig allar verið kjörnar til trúnaðarstarfa fyrir VR. Viðmælendur eru Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrsti kvenformaður VR, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, núverandi stjórnarkona og Stefanía Magnúsdóttir sem sat í stjórn VR í 20 ár og einnig varaformaður um tíma. Þær ræða um Kvennárið, þýðingu jafnréttisbaráttunnar fyrir þær og ýmislegt varðandi barneignir, blæðingar og breytingaskeiðið.
6 Oct 2025
Um leið og ég fór að æfa mig í íslensku þá opnaðist allt
Ferðaþjónustan er orðin ein stærsta atvinnugreinin á Íslandi og í þessum þætti spjallar formaður VR, Halla Gunnarsdóttir, við konur sem starfa við fjölbreytt störf innan hennar. Rætt er við Eyrúnu Gunnarsdóttur, móttökustjóra hjá Fosshótelum, Eriku Martins Carneiro sem starfar sem leiðsögukona hjá Góu Travel og Jennifer Schroder, söluaðila hjá 360 Wanderlust og stjórnarkonu í VR. Opið og fræðandi spjall um ferðaþjónustuna, reynslu erlendra kvenna af því að aðlagast íslensku samfélagi, framkomu ferðamanna og margt fleira.
15 Sept 2025
Svakalega ertu vígaleg á þessum lyftara!
Í þessum þætti er rætt við konur sem starfa við lagerstörf og eru í VR. Rætt er við þær Sunnevu Blöndal hjá BYKO, Ágústu Ýr Írisardóttur hjá Bauhaus og Rebekku S. Hannilbalsdóttur sem starfar hjá Halldóri Jónssyni. Rætt er um ýmislegt sem viðkemur því að starfa á lager, hvernig er að vera kona í því starfi, framkomu viðskiptavina, fordóma, Kvennafrídaginn og margt fleira.
25 Aug 2025
Margt hefur breyst til hins betra, en það er allskonar eftir
Í tilefni af Kvennaári 2025 hefur VR hleypt af stokkunum hlaðvarpi um stöðu kvenna á vinnumarkaði. Í þessum þætti tekur Halla Gunnarsdóttir formaður VR á móti þeim Arndísi Arnarsdóttur hjá Hagkaup, Júlíönu Einarsdóttur hjá Aðföngum og Kristínu Sævarsdóttur hjá Húsasmiðjunni. Heiti þáttarins gefur fyrirheit um innihaldið, Margt hefur breyst til hins betra en það er alls konar eftir! Til umræðu er kvennabaráttan, þriðja vaktin og þrjú b – blæðingar, barneignir og breytingaskeiðið, svo fátt eitt sé nefnt.
31 Jul 2025
21.000 skref á dag - Konur í verslun
Félagsfólk VR vinnur við fjölbreytt störf í þjóðfélaginu en rætur félagsins liggja í verslun. Það er því vel við hæfi að hefja þessa þáttaröð með konum í verslun. Hér ræðir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, við þær Alexandriu Petrinu Arnarsdóttur hjá Ikea, Guðrúnu Maríu Jóhannsdóttur hjá Húsasmiðjunni og Guðnýju S. Bjarnadóttur hjá Vero Moda um starfið í versluninni, vinnuumhverfið og helstu áskoranir í starfinu. Þær ræða einnig kvennabaráttuna, jafnrétti, fordóma ásamt því að tala opinskátt um blæðingar, barnsburð og breytingaskeiðið.
27 Jun 2025
Konur í VR - Stikla
Halla Gunnarsdóttir interviews women in VR about their diverse roles and experiences in the workforce, highlighting the progress made and the remaining challenges for gender equality.
Podcast Authority Score: 12 / 100
A composite of feed quality, social presence, YouTube performance and engagement. Read the methodology.
Quality
23
Social presence
0
YouTube
0
Engagement
0
Host of VR hlaðvarpið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine