Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og fljótlega eftir það byrjaði hann sjálfur að troða upp með hljómsveitum sínum og svo sem hann sjálfur. Kaktus rifjar upp fimm hátíðir og við sögu koma írskir tvíburar, hómófóbískur túristi, John Grant og Damon Albarn og auðvitað fullt af músík.
Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum
31 Oct 2026
Ísleifur Þórhallsson og minningar frá Airwaves
Það er hátíðartími hjá tónlistarunnendum því Iceland Airwaves stendur fyrir dyrum. Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live hefur haldið hátíðina með sínu fólki frá 2018 og þekkir söguna vel. Hann kom í fimmu um fimm minningar sem tengjast Airwaves og þar kom margt skemmtilegt upp úr hattinum. Hann talaði um hljómsveitir og listamenn sem hafa byrjað á pínulitlum tónleikastöðum á Airwaves en orðið risastór í kjölfarið. Covid kom við sögu og átakið sem farið var í til að ná í unga fólkið. Svo spiluðum við skemmtilega tónlist tengda hátíðinni í ár.
24 Oct 2026
Hildur Knútsdóttir rithöfundur í Fimmunni
Skugginn er nafn á nýrri bók rithöfundarins, náttúruverndarsinnans og handhafa Bjartsýnisverðlaunanna Hildar Knútsdóttur en hún var gestur Felix í fimmu dagsins. Fimman var auðvitað tengd bókmenntum og Hildur sagði frá fimm bókum sem höfðu áhrif á líf hennar. Þar kenndi margra grasa og sagan barst frá Þjóð bjarnarins mikla til Hobbitans með viðkomu í Isabel Allende.
Contact Fram og til baka
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine