Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum úr smiðju Rásar 1 er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
Gróðurríkið spilar stórt hlutverk í hrekkjavöku og ýmissi hjátrú og hefðum sem henni tengjast. Í þættinum er hrekkjavaka sett í samhengi við uppskerulok, trúarsiði, Allra heilagra messu, leiki, nornir og galdrajurtir. Rætt er við Vilmund Hansen og Steinar Björgvinsson um alrúnu, gaddepli, eitraðar plöntur af náttskuggaætt, grasker, vofuleg tré eins og alaskasýpris og þallir, sem og kjötætuplöntur og sníkjuplöntur úr íslensku flórunni. Viðmælendur: Vilmundur Hansen og Steinar Björgvinsson.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
23 Oct 2026
Miklabraut, Hlíðar og Holt: Einkenni, gróður og brautryðjendur
Í þættinum er dvalið við Miklubraut og Hringbraut þar sem linditré og hin sögufræga Hringbrautarrós koma við sögu. Staldrað er við Klambratún og Skaftahlíð þar sem fyrsti landslagsarkitekt landsins, Jón H. Björnsson, átti heima. Rætt er við sérfræðinga um einkenni Hlíða og Holts. Staldrað er við funkish-stíl Norðurmýrar og litið er inn í vel lukkaða garða Búsetaíbúðanna við Einholt, Þverholt og Háteigsveg þar sem 150 plöntutegundir njóta sín. Húsin þykja vel heppnuð en arkitektarnir voru Guðrún Ingvarsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. Rætt er hvorutveggja um gróin hverfi og nýstárlegri verkefni sem setja má í samhengi við þéttingu byggðar á gömlum iðnaðarreitum.
Viðmælendur: Anna Dröfn Ágústsdóttir, Þráinn Hauksson og Hermann Georg Gunnlaugsson.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
16 Oct 2026
Hellisgerði: Gróður og saga
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs. Staldrað er við klifurhortensíu og gráösp. Óvænt saga af samskiptum manna og álfa við jaðar garðsins er opinberuð. Viðmælendur: Jónatan Garðarsson, Anton Helgi Jónsson og Steinar Björgvinsson.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine