26. Kolvetnainntaka við þjálfun, er hún komin útí öfgar?
Í þessum þætti spyrjum við einfaldrar en mikilvægrar spurningar: er kolvetnainntaka við þjálfun komin út í öfgar?
Hingað til hafa opinberar ráðleggingar legið á bilinu 30-90 g kolvetni á klukkustund. Í dag heyrum við af íþróttafólki sem tekur inn 120 g og jafnvel 150-200 g á klukkustund.
Til að svara spurningunni förum við yfir nýja yfirlitsgrein, „From Metabolism to Medals“ eftir Morton og félaga, sem birtist í The Journal of Nutrition árið 2026. Við skoðum hvað núverandi ráðleggingar segja, sem eru allt að 90 g á klukkustund, og hvort efri mörkin gætu verið nær 120 g á klukkustund, að minnsta kosti hjá vel þjálfuðu íþróttafólki.
Svo spyrjum við hvort hæstu tölurnar sem sjást í dag eigi stoð í rannsóknum eða séu meira trend en vísindi. Við ræðum líka hvaða máli blanda glúkósa og frúktósa skiptir, hvort betra sé að nota drykki, gel eða annað, og hvernig hægt er að þjálfa meltingarveginn til að þola meira.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara sem vilja vita hvort þeir eigi að elta tölurnar sem sjást hjá atvinnufólkinu, eða hvað hentar í raun.
Hlekk á Nutreleat appið er að finna hér en þú getur sótt það og prófað frítt án nokkurrar skuldbindingar:
https://www.nutreleat.is/app (https://www.nutreleat.is/app)
Við minnum á að stofnmeðlimakjörin okkar sem gefa þér 28% afslátt af báðum áskriftarleiðum hjá okkur gilda til miðnættis 1. nóvember.
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn, við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið.
28 Sept 2026
25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón
Í þessum þætti fáum við til okkar hana Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni hjá Heilsuklasanum. Sigríður starfaði um árabil sem sérfræðingur á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og hefur unnið með fjölda einstaklinga með beinþynningu. Hún stofnaði jafnframt vefinn beinheilsa.is, sem hefur það að markmiði að gera fræðslu um beinheilsu aðgengilega á íslensku.
Í þættinum ræðir Sigríður um beinmeiðsli meðal íþróttafólks, en slíkum tilfellum hefur farið fjölgandi á hennar borði. Hún útskýrir hvernig beinin bregðast við þjálfun og álagi, hvað getur legið að baki þegar þau gefa sig og hvers vegna skiptir máli að bregðast við í tæka tíð.
Þá fer Sigríður yfir hvernig næring og æfingaálag hafa áhrif á hormónakerfið okkar, og hvernig það samspil getur ýmist styrkt beinin eða veikt þau, bæði til skemmri og lengri tíma.
Virkilega fræðandi þáttur og mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara.
Nutreleat appið er loksins komið út og er akkúrat núna hægt að hlaða því niður og prófa frítt í 30 daga. En það hjálpar þér að innleiða og viðhalda tímabilaskiptri næringu samhliða þinni þjálfun: https://www.nutreleat.is/app (https://www.nutreleat.is/app)
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn – við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir,
-Nutreleat teymið.
14 Sept 2026
24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk
Í þessum þætti fjöllum við um tímabilaskiptar áherslur í næringu fyrir íþróttafólk, í hverju þær raunverulega felast, hversu breytilegir æfingadagar geta verið með tilliti til orku- og orkuefnaþarfar og hvaða praktísku atriði þarf að hafa í huga.
Við förum yfir hvernig hvíldardagar, miðlungserfiðir dagar og erfiðir æfingadagar kalla á ólíka nálgun í næringu, og hvernig hægt er að skipuleggja næringarinntöku útfrá æfingaálagi til að hámarka orku, afköst og endurheimt. Við ræðum líka hvernig fyrirsjáanleiki og skipulag í næringu getur sparað tíma og dregið úr óvissu hjá íþróttafólki sem er að reyna að ná betri árangri.
Í þættinum snertum við einnig á eiginleikum í Nutreleat appinu og hvernig hægt er að nýta þá til að fá sem mest útúr íþróttanæringunni.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara sem vilja skilja betur hvernig næring og æfingaálag spila saman.
Hlekk á appið er að finna hér en þú getur sótt það og prófað frítt án nokkurrar skuldbindingar:
https://www.nutreleat.is/app
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Spotify
5.0 / 5
7 ratings
Contact Íþróttanæring með Nutreleat
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine