Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Algeng lýsingarorð sem tengjast ákveðnum eiginleikum eru gagnsæ, eða að minnsta kosti með nokkuð augljósa merkingu.
Gömul og fátíð lýsingarorð hafa ekki alltaf augljósa merkingu og skilningur á því hvað þau merkja getur verið mismunandi frá einum til annars.
Nokkur fátíð lýsingarorð eru tekin fyrir í þessum þætti og skoðað hvaða skilning fólk leggur í þau.
18 Oct 2026
Lötrað, labbað, strunsað og strikað
Um algengar athafnir eru oft til mörg orð sem kalla má samheiti en lýsa athöfnunum nánar vegna fjölbreyttra blæbrigða í merkingu. Sagnirnar ganga og tala lýsa einna algengustu athöfnum okkar og um hvora þeirra er til fjöldi orða sem sum eru samheiti en lengra er á milli merkingar annarra.
11 Oct 2026
Grísk orð í íslensku
Gríska er án efa það tungumál sem er einna gjöfulast á orðaforða sinn. Orð af grískum uppruna eru hluti af orðaforða fjölmargra tungumála. Þau eru notuð í vísindum og fræðum, menningu og listum um allan heim og fjöldi þeirra sem hafa orðið að alþjóðlegum hugtökum er ómælanlegur.
Orð af grískum uppruna hafa jafnvel ratað í íslensku, sjaldnast þó beint heldur oftast eftir ýmsum krókaleiðum og í daglegu máli er fjöldi orða sem eru komin úr grísku.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Contact Orð af orði
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine