Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
3toOne - Agent Fresco á Airwaves - Kevin Cole og Manowar
Það er tutti frutti í Rokklandi vikunnar! Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í desember. Við heyrum spjall við hljómsveitina 3ToOne sem byrjaði á plötu fyrir 30 árum sem var að koma út núna. 3toOne er súpergrúppa: Sigurður Gröndal, Ingólfur Guðjónsson sem voru í Rikshaw og Pláhnetunni á sínum tíma, og Egill Olafsson. Súpergrúppa sem spilaði meðal annars á UXA 1995 og tók síðan upp þessa plötu. Við heyrum smá pistil frá London – Hulda G. Geirsdóttir sá Manic Street Preachers og Suede í London á föstudaginn og sendir póstkort. Rokkland var á Agent Fresco á Iceland Airwaves á föstudagskvöld og ræddi við þá Tóta og Arnór Dan eftir tónleikana í ráðhúskjallaranum. Og svo er það bandaríski útvarpsmaðurinn Kevin Cole sem er búinn að koma á Airwaves frá 2009 með félögum sínum á útvapsstöðinni KEXP sem hefur tekið upp meira en 300 hljómsveitir/listamenn á hátíðinni – mest á KEX hostel – og 150 milljónir hafa horft á það á Youtube. Í gær var frumsýnd í Bíó Paradís heimildarmynd um Kevin sem heitir Radioheart: The Drive and Times of DJ Kevin Cole. Kevin var viðstaddur og Rokkland ræddi við vin hans Benedikt Reynisson sem hefur verið einskonar hægri hönd Kevins á Íslandi öll árin.
1 Nov 2026
Iceland Airwaves 1999-2026
Rokkland vikunnar er einskonar upphitun fyrir Iceland Airwaves 2026 – og upprifjun. Rokkland hefur verið á Airwaves á hverju ári frá árinu 2000 og við rifjum upp eitt og annað. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Árni Matthíasson, Grímur Atlason, Sinéad O'Connor, Of Monsters and Men, Kevin Cole, John Lydon, Dhani Harrison, Thorunn Antonia Magnusdottir, Hilmar Örn Agnarsson, Magnus Thor, Dóri Braga, Magnus Stephensen ofl.
25 Oct 2026
Drottningin af Færeyjum - þungarokk og Metallica
Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á föstudagsamorguninn heimsótti hún Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið – sagði frá nýju plötunni sem hún segir að sé einskonar afturhvarf til Færeyja, og svo spilaði hún 2 lög af plötunni á kassagítar og eitt eldra. Rokkland var á tónleikunum og við tölum um þá líka, en Eivør er á samningi hjá plötuútgáfunni Nuclear Blast sem einbeitir sér að þungarokki og Eivør sem er nýlega flutt heim til Færeyja eftir að hafa búð lengi í Kaupmannahöfn kemur reglulega fram á metal-hátíðum víða um heim. Í seinni hlutanum er einmitt smá þungarokk þar sem við sögu koma Sólstafir – Led Zeppelin – Sólför Dimma – Deep Purple – Rainbow og Metallica, en daninn Flemming Rassmusen sem tók upp þrjár af bestu (að margra mati) plötum Metallica á níunda áratugnum er að koma til landsins og halda fyrirlestur um samstarfið við Metallica 5. Nóvember nk. Allt tengist.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
4.7 / 5
6 ratings
Spotify
5.0 / 5
4 ratings
Contact Rokkland
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine