Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.
Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir frumvarpi til laga um afnám erfðafjárskatts á Alþingi fyrir stuttu. Hún segir að það sé tímabært að afnema erfðafjárskatt enda sé hér um að ræða mjög óréttláta tvísköttun á fólk. Eðlilegt sé að spyrja hvort það sé sanngjarnt að skattleggja sömu tekjurnar tvisvar, fyrst þegar þeirra er aflað og svo við andlát. Af öllum fjárverðmætum er við skipti á dánarbúi skal greiða skatt í ríkissjóð áður en þau fara til erfingja hans. Rósa er í Skattaspjallinu að þessu sinni og fer yfir tillögu sína og baráttu gegn þessum ósanngjarna skatti og hagfræðileg rök að baki því.
Svíþjóð og Noregur hafa farið þá leið að afnema erfðafjárskatt en alls hafa tíu ríki innan OECD fellt skattinn niður. Erfðafjárskattur á sér langa sögu hér á landi en hann var tekinn upp samkvæmt tilskipun konungs árið 1792. Nú til dags er erfðafjárskattur 10 prósent af skattstofni dánarbús.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna (https://www.skattgreidendur.is/styrkja) eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is (mailto:upplysingar@skattgreidendur.is)
25 Oct 2026
#36 - Hvert stefnir í útgjaldaþróun ríkisins?
Hvaða tölum getum við treyst í fjárlagaumræðunni og hvað vita skattgreiðendur landsins í raun og veru um útgjöld og útgjaldaþróun? Staðreyndin er sú að ríkisvaldið er furðu hirðulaust um að greina og meta þróun tiltekinna útgjaldaflokka eins og kemur fram í Skattaspjallinu í dag þar sem Sigurður Már Jónsson ræðir við þá Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson gagnasérfræðinga Samtaka skattgreiðenda. Þeir Róbert og Arnar halda áfram að færa okkur fróðleik úr reikningum ríkisins og benda meðal annars á að íslenska velferðarkerfið er að verulegu leyti hannað á tímabili þar sem samfélagið var mun einsleitara. Það er grundvallað á búsetu frekar en vinnuframlagi, tekjum eða iðgjöldum. Einstaklingar langt að komnir geta átt rétt á sjúkra- eða endurhæfingarlífeyri í allt að fimm ár eftir aðeins eins árs lögheimilisbúsetu með möguleika á tveggja ára framlengingu þótt viðkomandi hafi aldrei starfað hér á landi eða greitt iðgjöld. Sami einstaklingur getur einnig átt rétt á örorku- eða ellilífeyri eftir þriggja ára lögheimilisbúsetu á Íslandi. Er þetta nýja Ísland?
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna (https://www.skattgreidendur.is/styrkja) eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is (mailto:upplysingar@skattgreidendur.is)
2 Oct 2026
#35 - Skattlaust ár komið til að vera?
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Skattaspjallsins að þessu sinni. Fyrir stuttu kom út ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Óli Björn víkur eðli málsins samkvæmt að skattheimtu og fyrirkomulagi hennar. Í viðtalinu er farið yfir það en Óli Björn setur fram nýjar hugmyndir á ýmsum sviðum skattkerfisins, svo sem hvernig hægt sé að koma á skattlausu ári og gefa þannig öllu ungu fólki tækifæri til að spara og koma sér rækilega af stað út í lífið. Sannarlega áhugaverð hugmynd. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna (https://www.skattgreidendur.is/styrkja) eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is (mailto:upplysingar@skattgreidendur.is)
Who has been a guest on Skattaspjallið
Names identified in recent episode analyses. Showing up to five guests.
Skafti Harðarson
Frosti Sigurjónsson
Arnar Arinbjarnarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Runólfur Ólafsson
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
8 ratings
Contact Skattaspjallið
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine