S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn
Í hlaðvarpsþætti vikunnar voru stóru málin tekin fyrir,góðri venju samkvæmt.
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Þórður Snær, Ásta Guðrún, Arnar Þór og Þórhallur Valur um hvort tölvur ættu heima í pontu Alþingis. Ótrúverðug atlaga stjórnarandstöðunnar gegn Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra vegna uppsagnar forstjóra Landsvirkjunar var krufin og framganga nýja Pírataflokksins, sem áður var kenndur við sjálfstæði, var gagnrýnd. Þórður Snær greindi fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar af sinni alkunnu snilld og kosningasigur Demókrata í nýliðnum þingkosningum í Bandaríkjunum var tekinn fyrir.
Í síðari hluta þáttar mættu þau Ragna Sigurðardóttirþingkona og Egill Hermannsson, ritari Ungs jafnaðarfólks og varabæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, í viðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals og var stúdíóið því fullmannað mis-ungu jafnaðarfólki. Egill fór yfir efni greinar sinnar umhægrisveifluna ýktu, aðdraganda hennar og viðbrögð. Ragna fór vel yfir þingsályktunartillögu sína um viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna, viðbrögð ráðherra og stjórnarandstöðu við henni, ýmsa aðra bresti í kerfinu ogreynslu sína af því að taka fæðingarorlof. Þá ræddu þau stöðu umhverfismála í umræðunni og hvort samfélagið væri að missa augun af umhverfisboltanum.
Umræðan var innihaldsrík, lífleg og vonandi upplýsandi fyrirjafnaðarfólk um allt land.
2 Nov 2026
S307: Öxin hennar Hildar, Alþýðusambandið og meintur miðjuflokkur
Vegna tæknilegra örðugleika er hlaðvarpið seint á ferðinni þessa vikuna. Í fyrri hluta þáttar mættu til Þórðar Snæs og Þórhalls Vals þær Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Regína Ásvaldsdóttir úr borgarstjórnarhópi flokksins. Þær höfðu ýmislegt að segja um uppsagnir Reykjavíkurborgar, enda með fjölbreyttan bakgrunn úr rekstri. Framsóknarflokkurinn var afhjúpaður sem stækur hægri íhaldsflokkur og rekstur Reykjavíkurborgar var krufinn af fagmanni í rekstri sveitarfélaga, líklega í fyrsta sinn í sögu íslenskra hlaðvarpa.
Í síðari hluta þáttarins kom Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands, í viðtal til Þórhalls Vals og Arnars Þórs. Hann fór yfir feril sinn í verkalýðsmálum, hver hann er og hvað hann hefur fram að færa auk þess að tíunda hvaða framtíð hann sér Alþýðusambandið sigla inn í með sjálfan sig við stýrið. Þeir ræddu hvaða samlegð er með sterkum jafnaðarflokki og verkalýðshreyfingunni, hvernig þessi öfl geta snúið bökum saman og náð árangri fyrir íslenska alþýðu. Stemningin á nýliðnu þingi ASÍ var krufin og hvernig sameina þurfi hreyfinguna. Þá var hinni klassísku spurningu velt upp: Hvernig virkjum við fólk til þátttöku í verkalýðsbaráttu og stjórnmálum?
23 Oct 2026
S306: Er ofurkonan að örmagnast?
Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“.
Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir um leikskólavist, þátttöku karla í jafnréttisumræðunni og margt fleira.
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Ásta Guðrún, Þórður Snær og Þórhallur Valur um lélegustu reiknivél sögunnar sem Framsókn kynnti til leiks í vikunni, villandi framsetningu kvótakóngs um þróun veiðigjalda, hvað ríkisstjórnin hefur gert í málefnum barna og bjartsýna hagspá Landsbankans.
Who has been a guest on Kratinn
Names identified in recent episode analyses. Showing up to five guests.
Logi Einarsson
Oddný Harðardóttir
Árni Páll Árnason
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
3.4 / 5
84 ratings
Contact Kratinn
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine